Glitnir í Lúxemborg stofnar dótturfélag til að annast umsýslu eignasafns bankans
Glitnir í Lúxemborg stofnar dótturfélag til að annast umsýslu eignasafns bankans
Glitnir í Lúxemborg hefur stofnað dótturfélagið Reviva Capital til að annast umsýslu og reksturs eignasafns bankans. Reviva Capital hefur hlotið starfsleyfi frá yfirvöldum og fjármálaeftirliti Lúxemborgar til að annast innheimtu- og eignaumsýslustarfsemi og hyggst félagið jafnframt bjóða öðrum aðilum þjónustu sína. Hjá Reviva Capital starfa átján starfsmenn, þar af níu Íslendingar. Stjórnendur og lykilstarfsmenn Glitnis í Lúxemborg eiga 10% hlut í félaginu sem að öðru leyti er í eigu Glitnis í Lúxemborg. Eignarhlutur starfsmanna er skilyrtur og tengdur markmiðum félagsins til lengri tíma.Glitnir í Lúxemborg stofnar dótturfélag til að annast umsýslu eignasafns bankans
Glitnir í Lúxemborg hefur stofnað dótturfélagið Reviva Capital til að annast umsýslu og reksturs eignasafns bankans. Reviva Capital hefur hlotið starfsleyfi frá yfirvöldum og fjármálaeftirliti Lúxemborgar til að annast innheimtu- og eignaumsýslustarfsemi og hyggst félagið jafnframt bjóða öðrum aðilum þjónustu sína. Hjá Reviva Capital starfa átján starfsmenn, þar af níu Íslendingar. Stjórnendur og lykilstarfsmenn Glitnis í Lúxemborg eiga 10% hlut í félaginu sem að öðru leyti er í eigu Glitnis í Lúxemborg. Eignarhlutur starfsmanna er skilyrtur og tengdur markmiðum félagsins til lengri tíma.
“Fyrir Reviva Capital liggur það flókna langtímaverkefni að hámarka verðmæti eignasafns Glitnis í Lúxemborg. Til að það megi takast er mikilvægt að það ríki stöðugleiki og langtímahugsun og með það að leiðarljósi studdi skilanefnd Glitnis stofnun félagsins heilshugar. Sá hópur sem leiðir félagið hefur staðið vel að verki við fjárhagslega endurskipulagningu bankans frá hruni og notið trausts yfirvalda og kröfuhafa í Lúxemborg, en Seðlabanki Lúxemborgar er stærsti kröfuhafinn,” segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis.
Reviva Capital hefur gert þjónustusamning við slitastjóra Glitnis í Lúxemborg um rekstur eignasafns Glitnis sem er að mestu lán til Evrópskra fasteignafélaga og eru eignir bankans að stærstum hluta í Þýskalandi, á Norðurlöndum og í Bretlandi. “Meginhlutverk mitt sem slitastjóri og lykilatriði í samningum við kröfuhafa er að tryggja faglegan og öruggan rekstur á eignum bankans yfir allt slitaferlið. Með stofnun Reviva Capital er tekið mikilvægt skref í þá átt,” segir Eric Collard, endurskoðandi og slitastjóri Glitnis í Lúxemborg.
Reviva Capital sinnir eignaumsýslu og innheimtu auk ráðgjafar á sviði fjárhagslegrar endurskipulagningar. Viðskiptavinir félagsins eru bankar, fjárfestingasjóðir, skiptastjórar og aðrir sem ráða yfir eignum og lánasöfnum sem þarfnast úrvinnslu, endurskipulagningar og innheimtu. Starfsmenn félagsins hafa allir bakgrunn í útlánastarfssemi, fjárfestingarbanka- starfsemi, fjármögnun fasteignaverkefna og fyrirtækjaráðgjöf.
Eignir í stýringu hjá Reviva Capital nema nú um 1,6 milljörðum Evra, sem jafngildir um 250 milljörðum íslenskra króna. Eignirnar eru að stórum hluta lán til fasteigna- og eignarhaldsfélaga, en einnig lán til einstaklinga. Reviva Capital gerði nýverið samning við þrotabú Landsbankans í Lúxemborg og við tvo stærstu kröfuhafa hans, Seðlabanka Lúxemborgar og skilanefnd Landsbanka Íslands, um umsýslu og innheimtu á stórum hluta eignasafns þrotabús Landsbankans í Lúxemborg. Samhliða þessu hefur Reviva Capital ráðið til sín nokkra af fyrrum starfsmönnum Landsbankans í Lúxemborg.
Á meðal minnihlutaeiganda í Reviva Capital eru Ari Daníelsson framkvæmdastjóri, Paul Embleton fjármálastjóri, Sigþór H. Guðmundsson yfirlögfræðingur og Fredrik Engman yfirmaður lánasviðs. Í stjórn Reviva Capital sitja Eric Collard slitastjóri Glitnis í Lúxemborg, Kristján Óskarsson framkvæmdastjóri skilanefndar Glitnis á Íslandi og Ari Daníelsson framkvæmdastjóri Reviva Capital.
Glitnir í Lúxemborg
Glitnir í Lúxemborg er í dag í hefðbundinni slitameðferð en í því felst að unnið er úr eignum bankans yfir lengra tímabil með það markmiði að hámarka virði þeirra. Bankinn fór í greiðslustöðvun í október 2008 í kjölfar hruns móðurfélags bankans á Íslandi. Við fjárhagslega endurskipulagningu Glitnis í Lúxemborg umbreytti skilanefnd Glitnis lánum móðurfélagsins í eigið fé og fer hún með allt hlutafé bankans. Á meðan á greiðslustöðvun stóð náðust samningar við helstu kröfuhafa og yfirvöld í Lúxemborg. Það samkomulag skilaði fullum endurheimtum til innlánshafa og almennra kröfuhafa, sem fengu fjármuni sína greidda út í apríl 2009. Að lokinni greiðslustöðvun í apríl 2009 skilaði Glitnir inn bankaleyfi sínu í Lúxemborg og fór í slitameðferð í samræmi við lög og reglur í Lúxemborg. Búast má við að slitameðferðin taki að lágmarki 5 ár. Þegar Glitnir var tekinn til slitameðferðar leysti þarlendur slitastjóri stjórn Glitnis í Lúxemborg frá störfum og fer því með stjórn bankans á meðan á slitameðferðinni stendur. Lögboðin hlutverk hans eru meðal annars að gæta jafnræðis á meðal kröfuhafa og hluthafa og að hámarka virði eigna.