29 Jan2014
Samið við fyrirtækjaráðgjöf MP banka
Slitastjórn Glitnis hefur gert samning við fyrirtækjaráðgjöf MP banka um að vera til ráðgjafar útfærslu á fyrirliggjandi frumvarpi að nauðasamningi Glitnis. Verkefni fyrirtækjaráðgjafar MP banka verða m.a. að leggja sjálfstætt mat á lausnir þar að lútandi. Leitað var til nokkurra innlendra aðila og ákvað slitastjórnin í framhaldi af því að ganga til samninga við MP banka.